|
fimmtudagur, mars 17, 2005 Punctured Tricycle on a Hillside Desolate
Halló! jæja, ég ætla aðeins að fara að gera þessa síðu mína aftur virka. ég er nefnilega að spá í að setja myndirnar mínar hérna inn svo þið getið kommentað á þær og sagt mér hvar ég gæti bætt mig og svona, og ég vil fá hreinskilin komment, takk! miðvikudagur, janúar 05, 2005 Þá er þessi dagur loks búinn. Var að klára að vinna núna fyrir hálftíma, og ef einhver veit það ekki þá hef ég tileinkað mér það virðingarverða starf að gerast póstmaður! Ég fór semsagt strax eftir skóla í dag kl. 2 að bera út bréf... en allavega, í svona löngum göngum þá gæti verið gott að hafa með sér einhverja tónlist til að hlusta á. Í þau fáu skipti sem ég hef gleymt þessari nauðsyn þá hef ég farið að hugsa óþarflega mikið. Það getur gerst þegar maður er svona lengi einn með sjálfum sér. Þetta gerðist í dag, og þær hugsanir sem eru mér efst í huga eftir daginn eru aðallega þessar tvær: Þegar ég var við það að klára póstinn þá datt mér í hug hvernig það væri að þurfa að bera út póst alveg endalaust! Það væri píning út af fyrir sig... alltaf nýr bréfabunki í kerrunni... pokinn tæmist aldrei, og ný hús bætast við... Mig á pottþétt eftir að dreyma þetta í nótt! En síðan fór ég líka að spá í ástarmálum og þessa sífelldu leit að hinum eina rétta maka. Ég held nefnilega að það sé ekki einhver ein/einn þarna úti, heldur er það frekar hinn eini og sanni persónuleiki. Þótt ykkur líki það betur eða verr þá er hægt að skipta mannfólkinu í hópa eftir persónuleika; feimið, hresst, daðrandi og svona... en þetta er nú bara í grófum dráttum.
föstudagur, desember 10, 2004 Jæja! bara liðnir 6 mánuðir og 18 dagar síðan ég skrifaði nokkurt orð inn á þessa blessuðu síðu. en það er nú ágætt að rifja stundum upp gömul kynni. En núna rétt í þessu var ég að koma inn eftir alveg allsvakalegan bíltúr. Og ég segi hér við ykkur börnin góð að ef þið eruð farin að hendast út í umferðina á eigin spýtur þá hef ég aðeins eitt að segja við ykkur. Tékkið á fjandans olíunni! Málið er sko það að ég, Sunna, Óli og Hjálmar vorum að keyra þarna hjá Snorrabrautinni, og litla ógeðslega olíuljósið blikkaði smá stund. Þessi smá stund gerði mig vitaskuld fremur vitskertan á þessu tímabili þannig að ég stoppaði bílinn bara strax. Komst maðurinn þá ekki bara að því að bíllinn var tómur... galtómur...! Kannski svona tveir dropar sem nægðu mér til að komast upp á select til að fylla tankinn með tveimur olíubrúsum... Vesen þessir bílar... en já, vissuð þið að Alexander Mikli dó á allsérstæðan hátt. Hann nefnilega teigaði 4 lítra vínkönnu í einum gúlp, féll niður flatur og "drapst"... síðan nokkrum dögum seinna DÓ hann, líklega vegna áfengiseitrunar... góða nótt! (ætli einhver skoði þessa síðu ennþá...?)
sunnudagur, maí 23, 2004 Á föstudaginn var staðið fyrir tjaldferð á vegum MR-inga. Við strákarnir ákváðum að fara með þeim, þannig að við keyrðum þangað á Vaninum hans Viktors. Rútan sem fór með MR-ingunum fór klukkan 1 en við fórum seinna, vorum komnir um 6 leytið. Mér fannst það hafa verið góð ákvörðun, því að þegar við komum á Selfoss var allt hundblautt og það hafði rignt allan daginn! og það var heldur ekkert á leiðinni að hætta. Það rigndi semsagt allt kvöldið og allir sem voru í tjöldum voru alveg hundblautir og fúlir. En eins og ég sagði áðan komum við strákarnir á Vaninum, og hann stóðst svoleiðis fullkomlega væntingar okkar. Vegna veðursins úti, og hitans inni hjá okkur þá varð bíllinn mjög vinsæll þetta kvöld, og á tímabili var hægt að líkja þessu við skemmtistað, þar sem það var farinn að myndast hópur fólks fyrir utan hann!
miðvikudagur, maí 12, 2004 Ég var í klippingu áðan. Ég vissi ekki að ég ætlaði í klippingu. En konan kom bara og klippti mig. Hún klippti mig ekki mikið. Bara smá...
Jæja gott fólk. Þá er komið nýtt útlit á þessa blessuðu síðu. Það á kannski eftir að fá mann til að skrifa eitthvað meira á hana. Ég hef bara alls ekki nennt þessu ef á að segja eins og er! en allavega, nú byrjar byrjar þetta með sumrinu, og vonandi bara renna skriftin úrúr mér eins og ostalengjur úr ostaskurðavél! feitt og bragðgott.... sunnudagur, maí 09, 2004 Ég var að finna upp á gamalli og skemmtilegri leið til að hreyfa sig, en það er nefnilega þessi skemmtilega íþrótt, Golfið! Ég og Gummi fórum út á völl í dag og kíktum á æfingasvæðið. Þar skutum við nokkrum kúlum, og ég verð nú að segja að maður stóð sig nú ágætlega... allavega hef ég ekki skotið 170 metra með driver áður...! Svona er þetta gaman... en núna tekur stærðfræðin víst við... ef ég nenni að læra þ.e.a.s. fimmtudagur, maí 06, 2004 Ég er ástfanginn. Ástfanginn upp fyrir haus! Það er ekki mannseskja sem hlýtur þessa ást, heldur hef ég fundið að ég elska lífið. Kannski er lífið manneskja. Ef lífið væri manneskja væri hún stelpa. Stelpa með blá augu. Það veit ég, augu sannleikans. Rauðar varirnar svo mjúkar og fallegar - Ef lífið væri manneskja hefði hún nafn. En auðvitað er lífið engin manneskja, Lífið er bara blóm. Já, stórt og fallegt blóm, sem teygir sig lengra eftir því sem lífsleiðin þröngvar sér lengra gegnum breiðstræti alheimsins. Stundum flýgur það á fleygiferð um hraðbraut hversdagsleikans, en síðan tekur það sér hlé og stoppar við undur veraldar - læk hreinleikans, þessa mikilfenglegu kirkju tónlistarinnar, og helst af öllu, við hinn mikla píramída ástarinnar.
|
|
!.Viktor.!
|