mánudagur, janúar 19, 2004
ef ykkur langar til að lesa skemmtilegar rökræður um skemmtilegt viðfangsefni milli mín og salóme, þá er ykkur velkomið að skoða. (ég er "Palli var einn í heiminum, og Salóme er Emólas....salómE?
En já gjöriði svo vel
Palli var einn í heiminum... says:
hva segiru?
Emólas... salómE? says:
já, ég sagði bara viðann að brjóstarhaldarinn væri í skápnum neðst til vinstri og hann bara ha?
Palli var einn í heiminum... says:
núh
Palli var einn í heiminum... says:
það er svakalegt!
Emólas... salómE? says:
ég veit!!!!
Emólas... salómE? says:
svo sagði ég líka við hann að konan hans væri hvort sem er með sigin brjóst svo það væri bara best fyrir okkur öll ef hann skildi bara viðana... ég meina... þetta getur ekki verið eðlilegt
Palli var einn í heiminum... says:
já einmitt, sigin brjóst eru verk djöfulsins
Emólas... salómE? says:
já... en svo er brúðkaupið bara í næsta mánuði eins og ekkert hafi í skorist...!
Palli var einn í heiminum... says:
núh?
Palli var einn í heiminum... says:
hvaða rugl er nú það!
Palli var einn í heiminum... says:
við verðum að bæta úr því
Palli var einn í heiminum... says:
við fáum rút til að giftast henni og þú giftist honum!
Emólas... salómE? says:
já, Pétur sagðist ætla að kaupa kökuna sem er nottla bara algjört hneyksli útaf þessu með hana í vesturbænum
Palli var einn í heiminum... says:
ætlar hann að kaupa kökuna!??
Palli var einn í heiminum... says:
þvílíkt hneyksli!
Emólas... salómE? says:
nei, við töluðum hann út úr því... hann ætlar bara að tjalda í kópavoginum í staðinn greyið... hann er alveg úti að aka, ég er að segja þér það!
Palli var einn í heiminum... says:
nei hann keypti sér bát um daginn, fór hann þá ekki að sigla?
Emólas... salómE? says:
neinei... það var Palli hennar Guðrúnar...
Palli var einn í heiminum... says:
núú
Emólas... salómE? says:
annars efa ég það að hann nái sér nokkuð eftir þetta... sonur hans er hommi þú skilur
Palli var einn í heiminum... says:
var þetta ekki haraldur hennar hallfríðar?
Palli var einn í heiminum... says:
já þú meinar
Palli var einn í heiminum... says:
jújú hann hlýtur að komast yfir þetta
Palli var einn í heiminum... says:
hann er svo sterk sál
Emólas... salómE? says:
neinei hvaða vitleysa! þau eiga dótturina með tourettes
Palli var einn í heiminum... says:
já ég hef trú á þeim sko
Palli var einn í heiminum... says:
þau meika þetta
Emólas... salómE? says:
helduru það? ég sagði nefnilega við hann að hann ætii frekar að fara í sjoppuna á hafnarstrætinu því konan með hettuna væri blind...
Palli var einn í heiminum... says:
sagðiru það? ég sá hann sko fara á inná hlöllabáta
Emólas... salómE? says:
neinei... það hefur verið einhver annar... hann borðar ekki fisk þú skilur...
Palli var einn í heiminum... says:
nei hann fékk sér grænmetisgullfiskinn
Emólas... salómE? says:
nei láttu ekki svona... ég veit vel að hann borðaði svínakjöt þegar hann var lítill! þú getur ekkert logið af mér, við vorum vinir í æsku... hann sagði mér líka að hinn væri sköllóttur
Palli var einn í heiminum... says:
hann er þá greinilega að ljúga að þér , því að ég sá og hitti og talaði við hann inni á hlöllabátum að éta grænmetisgullfisk með melónu!
Emólas... salómE? says:
ég veit ekkert um það, en hitt veit ég, að konan hans hélt við ása á sínum tíma og hann segist ekkert vita um málið sökum mjólkurskorts
Palli var einn í heiminum... says:
já... það er nú ekki gott, maður þarf nú að vera traustverðugur hundi sínum
Emólas... salómE? says:
æji... annars skil ég þetta svosum alveg... greyið vissi ekki hvort hringurinn væri í léttmjólkinni eða undanrennunni og lét það þá bara vera... hver hefði ekki gert hið sama? Annars segist helga dóttir vinar bróður jónsa hafa séð hann með vafasömum lýð á ballinu til styrktar forsætisráðherranum...
Palli var einn í heiminum... says:
núh
Palli var einn í heiminum... says:
það eru nú ekki góðar fréttir
Emólas... salómE? says:
nei, en hinsvegar sagði ég honum frá þessu fyrsta og allt fór í háaloft!
Palli var einn í heiminum... says:
hvaða hvaða, já skapið fer nú oft með karlgreyið í gönu
Palli var einn í heiminum... says:
r
Emólas... salómE? says:
æj... ég veit samt ekki alveg með þetta allt saman... það er auðvitað álitsmál hvort þetta hafi verið bolur eða toppur... ég segi samt að þetta hafi allt verið gabb frá upphafi til enda... maður vill samt ekkert segja við hann fyrr en öll spil hafa verið lögð á borðið...hans vegna, þú skilur...
Palli var einn í heiminum... says:
já þú meinar, en þú veist að þetta var skyrta, er það ekki?
Emólas... salómE? says:
jú, ég frétti það síðan seinna... en það breytir því ekki að þetta ver mikið fíaskó á þeim tímapunkti, hvað átti maður annars að gera?
Palli var einn í heiminum... says:
jú maður hefði nú getað bara ditchað gaurinn og tekið cabba niður á granda
Emólas... salómE? says:
já, en hvað með sjóðinn? ég hefði frekar labbað ef þú spyrð mig... annars veit ég ekkert hvort það væri besti kosturinn, bara svona með tilliti til hermanns...
Palli var einn í heiminum... says:
nei þú veist, þú hefur alveg fullan rétt á að taka leigubíl og borga hann með sjóðnum, hefuru ekki lesið reglugerð 4D?
Palli var einn í heiminum... says:
þar kemur skýrt fram að í neyðartilvikum sem viðkoma óheiðarleika gullfiska með jólasveinahúfur þá má tiltekinn aðili nýta sér sjóð félagsins til að koma sér frá tilteknum viðburði
Emólas... salómE? says:
hverjum er ekki sama um þessa fjandans reglugerð, hún er úrelt hvort sem er, það hef ég alltaf sagt! Aðalmálið er að hann tók ekki frá bílastæði, og virti ekki aldur konunnar í rútunni fyrir aftan, svo einfalt er það!
Palli var einn í heiminum... says:
nei nú ert þú að þrugla kona góð. Þessi reglugerð hefur nýlega verið tekin aftur upp á þingi, og þar var samþykkt að hún væri enn í fullu gildi+
Emólas... salómE? says:
það breytir því ekkert að hún á ekki við nein rök að styðjast! þú verður líka að taka tillit til þess að þegar hún var samþykkt var forseti alþingis ásam varaforsetunum tveimur í fríi og því var það steinn sjálfur sem samþykkti þetta á alþingi... það vita líka allir að hann hefur sitt lífsbrauð af því að ræna geisladiskum! Það þorði einfaldlega enginn að bjóða honum í birginn og það er eina...
Emólas... salómE? says:
ástæðan fyrir því að reglugerðin var tekin aftur upp!
Palli var einn í heiminum... says:
nei það gæti nú ekki verið, allar reglugerðir verða að vera samþykktar við viðurvist að minnsta kosti annars varaforsetanna, og hann var viðstaddur símleiðis. þannig að þetta er alveg fullgild regla, og hún á líka við mjög góð rök að styðjast, allavega siðferðislega séð. Ef maður lendir í svona neyðartilviki þá er það bara mannlegt að flýja og þessi regla býður bara upp á það, og þess vegna er hún réttlætanleg, mannréttindalega sé'ð
Emólas... salómE? says:
nei, ég var í .essu fríi... forsetinn var ásamt varaforsetunum í sundlauginni þar sem ég hafði yfirsjón með... þetta var talið svo mikið hneikslismál að þetta var þaggað niður og ákveðið var að reglugerðinni væri leyft að lifa þangað til hún kæmi aftur til umræðu og þá væri hún felld...
Palli var einn í heiminum... says:
nei hvaða vitleysa
Emólas... salómE? says:
engin vitleysa!
Palli var einn í heiminum... says:
á þessu þingi var öðrum varaforsetanna steypt af stóli vegna ábyrgðarleysis og ég var kosinn í stað hans
Palli var einn í heiminum... says:
og samþykkti þessa reglugerð
Palli var einn í heiminum... says:
þér til haga!
Emólas... salómE? says:
þú samþykktir þessa regluger ekkert frekar en forsetinn sjálfur! þetta eru allt bölvaðar lygar og rógursemi og ég lýð þetta ekki!!!
Palli var einn í heiminum... says:
ég hafði fullan rétt á að samþykkja þessa reglugerð og ég gerði það!
Palli var einn í heiminum... says:
hlustaðu á mig kona!
Emólas... salómE? says:
ég heyri vel allt sem þú segir en ég veit vel að þú ert sekur um að bera falsvitni og því ertu meinyrður og þér er ekki treystandi í málum sem þessum, því legg ég bara til að þú haldir þér réttum megin laganna og hættir þessum ærumeiðingum fyrir fullt og allt!
Palli var einn í heiminum... says:
nú ert þú bara að gera illt verra kona góð
Palli var einn í heiminum... says:
ég held mér langt fyrir innan lagaleg mörk og ég sinni starfi mínu vel
Palli var einn í heiminum... says:
mér var bara boðin staða sem varaforseti og ég tók við henni
Palli var einn í heiminum... says:
eins og mönnum ber
Emólas... salómE? says:
þetta er svo mikil lygasýki sem þú berst við! til þess eru tveir varaforsetar að einn sé enn eftir ef eitthvað kæmi uppá... þeir ráða ekki annan varaforseta! það er aðeins gert á þriggja ára fresti og sú staðreind að þú hafir ætlað að nýta þér fávisku mína gerir þig að mjög vondum amnni fyrir vikið
Palli var einn í heiminum... says:
jú þeir réðu annan forseta undir þeim forsendum að báðir varaforsetarnir voru fjarverandi, og auðvitað er það alveg út í hött! annar varaforsetinn hefði auðvitað átt að halda sig heima til að vera viðstaddur fundinn, en hann stóðst ekki freistinguna um að fara með forsetunum í frí, og það leiddi til þess að honum var vikið úr starfi vegna ábyrgðarleysis
Palli var einn í heiminum... says:
ég er ekkert að ljúga, komdu þessu inn í hausinn á þér1
Emólas... salómE? says:
allt í lagi, ég skal alveg þykjast trúa þér í þetta skiti, en það breytir því ekki að þótt eitthvað sé samþykkt fyrir alþingi geti það verið óraunsætt eða úrelt! Lítum bara á landbúnaðarráðherra!
Palli var einn í heiminum... says:
hann er nú ekki úreltur, það eru ennþá bóndar starfandi í landinu og það þarf einhvern til að hafa umsjón yfir þeim
Palli var einn í heiminum... says:
og að færa þeirra óskir fram fyrir þingi
Palli var einn í heiminum... says:
en auðvitað eru stundum hin fáránlegustu frumvörp samþykkt, en það á ekki við um þetta, að mínu mati hefur það fullan rétt á sér í landslögum
Emólas... salómE? says:
ég er ekki að tala um lanbúnaðarráðherraembættið, heldur ráðherran sjálfan! hann var samþykktur fyrir alþingi, og þótt hann sé yndislegur maður er hann í eldri kantinum, þ.e.a.s. úreltur!
Emólas... salómE? says:
annars er ég honum alveg sammála um það að íslenski tómaturinn sé góður ávöxtur...
Palli var einn í heiminum... says:
já það er alveg satt, að það þyrfti að fara að kjósa nýjan landbúnaðarráðherra á stól, en það verður bara að bíða fram til næstu kosnina
Palli var einn í heiminum... says:
kosninga
Emólas... salómE? says:
já, sem og reglugerð 4D sem hafði engan rétt á sér! Ég held nefnilega að hún sé ástæðan fyrir því að sigurður sé haltur... vitlaus laigubílstjóri að mínu mati...
Palli var einn í heiminum... says:
reglugerðin segir ekkert til um leigubílsstjóra, hún segir bara til um það að maður hefur rétt á að notfæra sér fé úr sjóðnum til að keyra með leigubíl frá staðnum
Palli var einn í heiminum... says:
það er síðan hans mál að finna áreiðanlegan leigubílsstjóra
Emólas... salómE? says:
nei, það er þess vegna sem ég tel að reglugerðin sé gölluð, hún er úrelt og þarfnast stórtækra breytinga
Palli var einn í heiminum... says:
hún þarfnast ekkert stórtækra breytinga
Palli var einn í heiminum... says:
þessi reglugerð á ekki á neinn hátt að vernda þann sem málinu viðkemur, hún á bara að leggja fram fjárhagslega aðstoð
Palli var einn í heiminum... says:
en þar á móti mætti athuga að semja nýja reglugerð sem gæti fjallað um öryggi viðriðins aðilla
Emólas... salómE? says:
jú, þótt hún sé byggð á góðum grunni og góðu konsefti, þá eru stór göt í skýrslum og gallar sem engar útskýringar eru á, ef þessi reglugerð á að lifa mikið lengur þarfnast hún mikillar vinnu!
Palli var einn í heiminum... says:
nei hún er á mjög traustum grunni byggð.
Palli var einn í heiminum... says:
eins og hvaða gallar ?
Emólas... salómE? says:
já,
Emólas... salómE? says:
eg vitna í sjálfa mig: þótt hún sé byggð á góðum grunni og góðu konsefti
gallarnir eru leti í skýrslugerðum og skortur á nýtingu reglugerðarinnar!
Emólas... salómE? says:
ég sagði aldrei neitt um að hún væri byggð á ótraustum grunni
Palli var einn í heiminum... says:
já afsakðu það, ég mismælti mig,
Palli var einn í heiminum... says:
en hvaða gall hefur hún að geyma? reglugerðin hljóðar svo, "í neyðartilvikum sem viðkoma óheiðarleika gullfiska með jólasveinahúfur þá má tiltekinn aðili nýta sér sjóð félagsins til að koma sér frá tilteknum viðburði" og hún segir líka :"það má ekki eyða meira en 3500. kr í hvert skipti" þannig að það er ekki hægt að misnota hana til að fá frítt far á djammið
Emólas... salómE? says:
og ég geri það enn og aftur að vitna í sjálfa mig: GALLAR ERU LETI Í SKÝRSLUGERÐUM OG SKORTUR Á NÝTINGU REGLUGERÐARINNAR!
Ég er EKKI að tala um hvað stengur og stendur ekki í reglugerðinni sjálfri
Palli var einn í heiminum... says:
þessi reglugerð var gerð til að hægt væri að nota ´hana í sérstökum tilfellum
Palli var einn í heiminum... says:
þó að hún sé ekki mikið notuð, þýðir ekki að hún sé úrel
Palli var einn í heiminum... says:
t
Emólas... salómE? says:
jú, það þýðir það einmitt! Hlutur eða hugtak sem skortir notkun er skilgreining orðsins úreltur! fólk er nánast hætt að notast við þetta
Palli var einn í heiminum... says:
þá er hún kannski úrelt, ef fara á eftir þínum röksemdum, en þessi reglugerð á samt rétt á sér í hagkerfinu, því að svona hlutir geta gerst og það er okkar verk að komast hjá slysi ef svona hlutir gerast,
Palli var einn í heiminum... says:
jafnvel þó það þurfi aldrei að nota þessa reglugerð,
Palli var einn í heiminum... says:
segjum sem svo að þessi reglugerð væri felld niður, og síðan myndi einmitt svona neyðartilvik eiga sér stað. þá væri engin reglugerð til staðar, og þá myndi þjóðin öll koma upp á móti ríkisstjórninni og ef til vill fella hana af stóli1
Palli var einn í heiminum... says:
!
Emólas... salómE? says:
nei! þá myndi þá sem ætti við vandann að stríða einfaldlega fá lánaða peninga fyrir leigubílnum! svo einfalt er það!
Palli var einn í heiminum... says:
hvar ætti hann að gera það?
Emólas... salómE? says:
það er augljóst! HANN ER AÐ KOMA AF FJÁRÖFLUN!hann er ekki eini maðurinn á staðnum og því hlýtur að vera hægt að leysa málið!
Palli var einn í heiminum... says:
segjum sem svo að þetta hefði gerst lengst útí óbyggðum, þar sem enginn er viðstaddur
Palli var einn í heiminum... says:
hvar ætti hann þá að fá pening?
Emólas... salómE? says:
hann er að fara í leigubíl vitleysingurinn þinn!
Emólas... salómE? says:
hann biður leigubílinn vinsamlegast um að koma við ehima hjá sér svo hann geti náð í pening!
Palli var einn í heiminum... says:
kannski er hann í fjárhagslegum erfiðleikum og á ekki pening fyrir bílnum
Emólas... salómE? says:
það hefur aldrei gerst og mun aldrei gerast að maður sem á í fjárhagslegum erfiðleikum lendir úti í óbyggðum og lendir "í neyðartilvikum sem viðkoma óheiðarleika gullfiska með jólasveinahúfur þá má tiltekinn aðili nýta sér sjóð félagsins til að koma sér frá tilteknum viðburði"
Palli var einn í heiminum... says:
það gæti gerst
Palli var einn í heiminum... says:
allavega í þessum heimi sem við lifum í
Palli var einn í heiminum... says:
hefuru litið út um gluggan nýlega? við lifum á öld gullfiska og jólasveina!
Emólas... salómE? says:
þá ættum við líka að vera með reglugerðir sem vernda þá sem lenda í því að birtast allt í einu á fíl í Kína árið 1233
Palli var einn í heiminum... says:
nei afhverju segiru það? ´fílar eru útdauðir
Emólas... salómE? says:
í fyrsta lagi eru fílar ekki útdauðir, og í öðru lagi, ef þeir væru það, væru þeir ekki útdauðir árið 1233...
Palli var einn í heiminum... says:
bíddu þú lifir í þeirri sömu veröld og ég ekki satt?
Emólas... salómE? says:
jú, það geri ég, hví? ertu geðklofi eða borðaðiru sandkastala?
Palli var einn í heiminum... says:
nei ég fékk mér bara ananassultu í morgun, rétt áður en ég sigldi í vinnuna
Palli var einn í heiminum... says:
það er nefnilega allt á floti, búið að vera það seinustu 50 árin
Emólas... salómE? says:
já, það sýnir bara að þú stendur á sjónarhóli undir sjávarmáli!
Palli var einn í heiminum... says:
sem er gott í mínum heimi
Emólas... salómE? says:
og getur því ekki haft sjónarmið!
Palli var einn í heiminum... says:
jú ég get vel haft mín sjónarmið,
Emólas... salómE? says:
nei!
Emólas... salómE? says:
ekki í þessu ástandi!
Palli var einn í heiminum... says:
málið er að þín sjónarmið eiga ekki við þessa veröld, sem allavega ég lifi í núna
Emólas... salómE? says:
segðu mér þá eitt...
Emólas... salómE? says:
TIL HVERS ERTU AÐ SEGJA AÐ REGLUGERÐ 4D SÉ EKKI ÚTRUNNIN EF HÚN FJALLAR UM LEIGUBÍLA Í HEIMI ÞAR SEM ALLT ER Á FLOTI!
Palli var einn í heiminum... says:
þetta eru flotbílar sjáðu til
Palli var einn í heiminum... says:
oh þarna náðiru mér samt
Þannig að nú er ljóst að Salóme er betur sett en ég í rökræðum um mál gullfiska með jólasveinahúfur. Gott að hafa það á hreinu.
[ Viktor ] | 12:01 AM |