föstudagur, febrúar 27, 2004


Jæja, þá er hinn stóri dagur runninn upp, eða seinasti dagur lagningardaga, sem endar með alveg stórmagnaðri(vonandi) árshátíð á Hótel Selfossi. Nú ættu flestir MH-ingar að vera farnir að skella sér í diskó-gírinn, en þema árshátíðarinnar á víst að vera það tímabil tónlistarsögunnar. Ég vona samt að það verði líka eitthvað í fönkuðu áttina á ballinu, þar sem það er miklu skemmtilegri músik. Auk þess er líka Jagúar að spila þannig að ég ætti ekki að hafa neinar áhyggjur.
Núna er maður aðeins að hita upp fyrir kvöldið, testa gallann og hlusta á nokkur grúvuð og fönkuð skemmtilegheit frá böndum eins og JAGÚAR, Kool & the gang og svona. Það er spurning hvað maður ætti að gera sér til skemmtunar næstu 4 tímana, en það er planið hjá mér, Gumma og Viktori að byrja kvöldið á að fá sér einn feitan burger á Vitabar. Síðan er ferðinni heitið upp á Skólavörðustíginn þar sem við fáum okkur kannski þónokkra öllara og þannig. En já ég ætla ekki að segja meira frá þessu vonandi skemmtilega kvöldi fyrr en ég er búinn að upplifa það, þannig að bara þangað til næst... Bless!

[ Viktor ] | 1:52 PM |

!.Viktor.!