fimmtudagur, mars 04, 2004

Í dag fékk ég mér aðeins forskot á sæluna og keypti mér eitt svona lítið páskaegg. Var eiginlega mest spenntur fyrir málshættinum innan í. Reyndar eru þetta oft ömurlegir málshættir þarna í þessum eggjum en núna fékk ég einn ágætan... allavega finnst mér það...

"Sá sem þekkir aðra er lærður, sá sem þekkir sjálfan sig er vitur."

En já Hann Viktor Melsen á afmæli í dag elsku kallinn og ætla ég hér að óska honum innilega til hamingju! Hann bara kominn með bílprófið og alles! Síðan vonast ég til þess að hann taki kannski kallinn á túrinn á eftir á Rósunni eitthvað... alltaf gaman að því.. !

[ Viktor ] | 5:50 PM |

!.Viktor.!