fimmtudagur, mars 04, 2004



Jæja þá er komið að því að blogga svona allskemmtilega!
Það er reyndar ekki mikið til að blogga um þessa dagana, nema bara... veðrið? nei... frekar óspennandi umræðuefni... en jújú látum það bara vaða. Í dag var helvíti gott veður, eiginlega bara helvíti góður dagur! Allavega hjá mér persónulega. svaf yfir mig, átti að mæta klukkan 10 í skólann, en ég fór bara klukkan hálfeitt... nennti ekkert að stressa mig.. en já síðan fór ég bara í einn tíma, dönsku, þar sem ég var bara að leita að upplýsingum um Christianiu og sögu þess! en já, síðan kíkti maður til sollu, sem var ikkað slöpp stelpan... síðan labbitúr með henni Hönnu.. og já síðan sund með Viktori, Áslaugu og Dóru..! þar hittum við reyndar fullt af fólki... allt í þessu svaðalega veðri...!
En já, þetta er örugglega bara leiðinlegasta blogg sem ég hef á ævi minni skrifað, þannig að ég er bara hættur. Lítið um einhverjar hugleiðingar í dag. Verið bara sæl.

Vil líka taka það fram hérna í lokin að ég er víst Rússíbani...

See what amusement park ride you are.

[ Viktor ] | 12:58 AM |

!.Viktor.!