sunnudagur, maí 23, 2004
Á föstudaginn var staðið fyrir tjaldferð á vegum MR-inga. Við strákarnir ákváðum að fara með þeim, þannig að við keyrðum þangað á Vaninum hans Viktors. Rútan sem fór með MR-ingunum fór klukkan 1 en við fórum seinna, vorum komnir um 6 leytið. Mér fannst það hafa verið góð ákvörðun, því að þegar við komum á Selfoss var allt hundblautt og það hafði rignt allan daginn! og það var heldur ekkert á leiðinni að hætta. Það rigndi semsagt allt kvöldið og allir sem voru í tjöldum voru alveg hundblautir og fúlir. En eins og ég sagði áðan komum við strákarnir á Vaninum, og hann stóðst svoleiðis fullkomlega væntingar okkar. Vegna veðursins úti, og hitans inni hjá okkur þá varð bíllinn mjög vinsæll þetta kvöld, og á tímabili var hægt að líkja þessu við skemmtistað, þar sem það var farinn að myndast hópur fólks fyrir utan hann!
Það var ágætlega mikið drukkið þarna í ferðinni og mér datt ekki í hug að halda aftur af mér þar. Ég var líka ótrúlega skemmtilega ölvaður þarna, allavega með þeim meira fullu á svæðinu. Þegar við komum þurftum við auðvitað að borða en það var rigning þannig að grillin gátu nú ekki gert mikið. Þá stakk Gummi upp á því að fara inn í tjaldskálann og bara steikja hamborgarana þar. Mér leist ekki vel á það fyrst, ég vildi grilla minn! en síðan hætti ekkert að rigna þannig að ég fór að dæmi Gumma og steikti borgarann minn í potti sem ég fann þarna. Eftir matinn tóku við harðar stjórnmálaumræður þarna í skálanum og hinir og þessir krakkar höfðu margt til málanna að leggja. Ég ætla ekki að fara með þau mál hérna.
Eftir kvöldið fóru allir að sofa, alltof snemma að mínu mati, eða klukkan 2. En ég varð að sætta mig við það og fór að sofa í heita og góða bílnum með Viktori, Rúti og Halldóru.
Þetta kvöld var bara með þeim skemmtilegustu ferðum sem ég hef farið í verð ég nú að segja, þó held ég að það séu ekki allir á sama máli, þar sem það voru ekki allir í heitum sendiferðabíl.
Ég ætla að enda þetta með því að hrósa mínum skemmtilegu vinum fyrir magnaða ferð. Viktor fær stærsta plúsinn fyrir að hafa komið með Vaninn. Rútur, Halldóra og Viktor fá líka hrós fyrir að vera ágætis svefnplássfélagar... ef það mætti kalla það það... og já. Gummi fær líka hrós fyrir að vera gaurinn með gleraugun, og Jói fyrir að vera í grænni flíspeysu.
Takk fyrir mig.!
Þið getið fundið myndir hérna, og hérna.
>Áslaug fær líka plús fyrir að þurfa lítið áfengi til að vera mjög.. hress!
[ Viktor ] | 7:14 PM |