föstudagur, desember 10, 2004

Jæja! bara liðnir 6 mánuðir og 18 dagar síðan ég skrifaði nokkurt orð inn á þessa blessuðu síðu. en það er nú ágætt að rifja stundum upp gömul kynni. En núna rétt í þessu var ég að koma inn eftir alveg allsvakalegan bíltúr. Og ég segi hér við ykkur börnin góð að ef þið eruð farin að hendast út í umferðina á eigin spýtur þá hef ég aðeins eitt að segja við ykkur. Tékkið á fjandans olíunni! Málið er sko það að ég, Sunna, Óli og Hjálmar vorum að keyra þarna hjá Snorrabrautinni, og litla ógeðslega olíuljósið blikkaði smá stund. Þessi smá stund gerði mig vitaskuld fremur vitskertan á þessu tímabili þannig að ég stoppaði bílinn bara strax. Komst maðurinn þá ekki bara að því að bíllinn var tómur... galtómur...! Kannski svona tveir dropar sem nægðu mér til að komast upp á select til að fylla tankinn með tveimur olíubrúsum... Vesen þessir bílar... en já, vissuð þið að Alexander Mikli dó á allsérstæðan hátt. Hann nefnilega teigaði 4 lítra vínkönnu í einum gúlp, féll niður flatur og "drapst"... síðan nokkrum dögum seinna hann, líklega vegna áfengiseitrunar... góða nótt! (ætli einhver skoði þessa síðu ennþá...?)

[ Viktor ] | 3:07 AM |

!.Viktor.!